©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf  
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201  
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
 

Petri Sallinen o.fl. gegn Finnlandi

Dómur frá 27. september 2005

Mál nr. 50882/99

8. gr. Réttur til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu

Haldlagning lögreglu á gögnum með persónulegum upplýsingum. Skýrar lagaheimildir. Lögmenn.

 

1. Málsatvik

 Kærendur eru 18 finnskir ríkisborgarar. Sallinen er lögmaður og voru hinir 17 kærendurnir skjólstæðingar hans á þeim tíma sem atvik urðu sem málið fjallar um.

 Í janúar 1999 framkvæmdi lögregla leit í húsakynnum Sallinen í tengslum við rannsókn refsimáls þar sem hann var þá talinn vera vitni. Var lagt hald á tiltekin gögn við leitina.

 Önnur húsleit lögreglu og skattyfirvalda fór fram á lögfræðistofu og heimili kæranda í mars 1999 á þeim grundvelli að kærandi væri grunaður um að hafa aðstoðað tvo skjólstæðinga sína sem voru grunaðir um auðgunarbrot. Var lagt hald á ýmis gögn í húsakynnum hans svo og tölvur, auk þess sem afrit voru tekin af ýmsum rafrænum gögnum. Umræddir skjólstæðingar hans voru í framhaldi þessa ákærðir fyrir auðgunarbrot. Ekki var gefin út ákæra á hendur Sallinen. Reyndi hann að fá haldlagningunni hnekkt fyrir dómstólum en án árangurs.

 Í maí 1999 skilaði lögreglan gögnum til kæranda sem hald hafði verið lagt á. Hún hélt þó eftir afriti af hörðu drifi í eigu Sallinen þar sem m.a. voru ýmsar persónulegar upplýsingar um þrjá kærendur, A, B og C. Báru þeir haldlagninguna undir dómstóla og reyndu að fá henni hnekkt. Niðurstaða Hæstaréttar Finnlands málinu var að i að umræddum tölvuskrám hefði átt að skila strax eða eyða og fengu kærendurnir þrír greiddan málskostnað.

 

2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum

Kæran

 Kærendur töldu að leitin og haldlagning persónulegra gagna hefði brotið gegn friðhelgi einkalífs, heimilis og bréfaskipta samkvæmt 8. gr., rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt 6. gr. og þeir hefðu ekki haft raunhæft úrræði til að leita réttar sína samkvæmt 13. gr. sáttmálans.

 Finnska lögmannafélagið neytti heimildar til að skila athugasemdum í málinu á grundvelli 2. mgr. 36. gr. sáttmálans.

 

Niðurstaða

 Dómstóllinn taldi að rannsóknaraðgerðir lögreglunnar hefðu falið í sér takmörkun á friðhelgi heimilis og bréfaskipta kærandans Sallinen samkvæmt 1.mgr. 8. gr. sáttmálans svo og friðhelgi einkalífs og bréfaskipta skjólstæðinga hans. Þyrfti að kanna hvort skilyrði takmörkunarinnar samkvæmt 2. mgr. 8. gr. væru uppfyllt. Dómstóllinn benti á finnsk lög væru ekki nægilega skýr um það í hvaða tilvikum leit mætti fara fram á persónulegum gögnum og hvenær hald mætti leggja á slík gögn. Þá væri óljóst hver væru tengsl löggjafar um þvingunaraðgerðir lögreglu og ákvæða laga um lögmenn þar sem fjallað væri um trúnaðarskyldu og þagnarskyldu lögmanna gagnvart skjólstæðingum sínum. Heimildir finnskra laga til húsleitar og haldlagningar, þar með talið á gögnum með persónulegum upplýsingum á tölvudiskum, væru almenns eðlis og ákvörðunarvald um að beita þeim væri á hendi stjórnanda lögreglurannsóknar án aðkomu dómstóla. Hefði verið lagt hald á margvísleg bréfaskipti Sallinens við skjólstæðinga sína. Í ljósi vöntunar á skýrum reglum um haldlagningu á gögnum af þessu tagi og laglegum úrræðum til að bregðast við slíkum aðgerðum voru kærendur sviptir þeirri lágmarksvernd sem þeir ættu rétt á að njóta í réttarríki.

 Dómstóllinn taldi einróma að brotið hefði verið gegn réttindum kærenda samkvæmt 8. gr. sáttmálans þar sem ekki hefði verið mælt fyrir um takmarkanir á þeim í lögum. Með hliðsjón af þessari niðurstöðu taldi dómstóllinn ekki þörf á að kanna sérstaklega kæruefnið varðandi 6. og 13. gr. sáttmálans.

 Voru Sallinen dæmdar 2.500 evrur í miskabætur á grundvelli 41. gr. sáttmálans. Kærendurnir A, B og C fengu dæmdar samtals 6.870 evrur sameiginlega vegna málskostnaðar fyrir innlendum dómstólum og fyrir Mannréttindadómstólnum.