©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf  
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201  
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
 

Contardi gegn Sviss

Dómur frá 12. júlí 2005

Mál nr. 7020/02

6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi

Aðgangur að gögnum máls. Jafnræði málsaðila. Réttur til að tjá sig um framlögð skjöl.

 

1. Málsatvik

 Kærandi, Saverio Contardi, er svissneskur ríkisborgari, fæddur 1963 og býr í Sviss.

 Kærandi lenti í vinnuslysi sem leiddi til þess að hann gat ekki rækt starfa sinn. Frá 1991 fékk hann, ásamt eiginkonu sinni og barni, bætur frá slysatryggingasjóði Sviss. Í kjölfar þess að kærandi og eiginkona hans eignuðust tvö börn til viðbótar var fjárhæð bótanna endurákvörðuð.

 Kærandi höfðaði mál fyrir alríkistryggingadómstóli vegna endurákvörðunar bótafjárhæðarinnar. Dómstóllinn vísaði máli hans frá eftir að hafa tekið við skriflegum skýrslum slysatryggingasjóðs, stjórnsýsludómstóls kantónunnar og tryggingastofnunar Sviss.

 

2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum

Kæran

 Kærandi taldi brotið gegn rétti sínum til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi þar sem honum hefði ekki veist færi á að svara skýrslum þeim sem fyrir tryggingadómstólnum lágu.

 

Niðurstaða

Dómstóllinn tók fram að rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar fæli í sér rétt málsaðila til að fá vitneskju og tækifæri til að tjá sig um öll gögn sem eru færð fram við dómstól. Þrátt fyrir að aðeins væri um að ræða stuttar skýrslur hefðu þær falið í sér rökstutt álit um kröfu kæranda og tillögur um að vísa ætti máli hans frá dómi. Skýrslunum hefði því berlega verið ætlað að hafa á áhrif á niðurstöðu málsins fyrir tryggingadómstólnum. Dómstóllinn áréttaði að litlu máli skipti hver áhrif skýrslurnar hefðu í raun haft á niðurstöðu tryggingadómsólsins, það væri aðila dómsmáls að meta það og ákveða hvort framlögð gögn kölluðu á svör eða athugasemdir. Það sem sérstaklega skipti máli hér væri traust sem aðilar bæru til dómstóla, sem byggðist meðal annars á vitneskju þeirra um að þeir hafi fengið tækifæri til að koma fram með andsvör við þau gögn sem lögð væru fram við meðferð málsins.

  Taldi dómstóllinn því einróma að brotið hefði verið gegn 1. mgr. 6. gr. sáttmálans. Taldi hann að dómsniðurstaðan um brot á réttindum kæranda fæli í sér nægilegar bætur vegna miska skv. 41. gr. sáttmálans og dæmdi honum 3.230 evrur í málskostnað.