©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf  
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201  
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
 

Gosselin gegn Frakklandi

Dómur frá 13. september 2005

Mál nr. 66224/01

5. gr. Réttur til frelsis og mannhelgi.

Gæsluvarðhald. Mál tekið fyrir í dómi innan hæfilegs tíma.

 

1. Málsatvik

Kærandi er franskur ríkisborgari, fæddur 1967 og býr í París. Hann var handtekinn af lögreglu og úrskurðaður í gæsluvarðhald 12. mars 1997 vegna gruns um aðild að manndrápi á manni sem hann hafði áður setið í gæsluvarðhaldi með. Hafði maðurinn verið skotinn í höfuðið fyrr sama mánuðinn.

Gæsluvarðhald kæranda var framlengt nokkrum sinnum af rannsóknardómara í undirrétti. Kærandi krafðist lausnar gegn tryggingu átta sinnum en öllum beiðnum hans var hafnað. Í ákvörðunum um að synja kæranda um lausn gegn tryggingu var vísað til þess rökstudda gruns sem var uppi um aðild hans að brotinu, það stefndi allsherjarreglu í hættu að láta hann lausan, refsingin sem lægi við brotinu væri þung, hætta væri á að hann reyndi að hafa áhrif á aðra ákærða í málinu eða vitni og loks væri ekki nægilega tryggt að kærandi myndi mæta við meðferð máls síns fyrir dómstólum yrði hann látinn laus.

Þann 28. september 2000 var kærandi sakfelldur fyrir manndráp og refsing ákveðin 30 ára fangelsi. Við áfrýjun var fangelsisdómurinn styttur í 20 ár.

 

2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum

Kæran

Kærandi taldi lengd gæsluvarðhalds síns, þrjú ár, sex mánuði og 16 daga, hafa brotið gegn rétti hans 3. mgr. 5. gr. sáttmálans til þess að mál hans yrði tekið fyrir í dómi innan hæfilegs tíma. Þá taldi hann rétt sinn til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sáttmálans hafa verið brotinn þar sem úrskurður ákærudeildar áfrýjunarréttar þann 28. mars 2000, þar sem kröfu hans um lausn gegn tryggingu var hafnað, hefði ekki verið birtur honum. Af þeim sökum hefði hann ekki getað áfrýjað ákvörðun um áframhaldandi gæsluvarðhald til yfirréttar.

 

Niðurstaða

Dómstóllinn taldi ekki sýnt fram á með gögnum málsins að umræddur úrskurður áfrýjunarréttar 28. mars 2000 hefði ekki verið birtur kæranda. Af þeim sökum var sá hluti kærunnar er varðaði brot á 6. gr. sáttmálans ekki talinn tækur til efnismeðferðar.

Dómstóllinn taldi að grundvöllur þeirrar ákvörðunar rannsóknaryfirvalda að hafna lausn kæranda gegn tryggingu hefði verið bæði viðeigandi og fullnægjandi á rannsóknartímanum. Hins vegar hefði málsmeðferðin verið haldin annmörkum. Var það sérstaklega vegna þess að rekja mátti tafir á málinu til tímabila þar sem dómstólar aðhöfðust ekki í málinu.

Með tilliti til atvika málsins taldi dómstóllinn einróma að lengd gæsluvarðhalds kæranda hefði verið óhófleg og brotið gegn 3. mgr. 5. gr. sáttmálans.

Kærandi krafðist ekki skaðabóta og tók dómstóllinn því enga ákvörðun um bætur á grundvelli 41. gr. sáttmálans.