©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf  
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201  
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
 

Dánarbú Elli Poluhas gegn Svíþjóð

Dómur frá 17. janúar 2006

Mál nr. 61564/00

8. gr. Réttur til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu

Greftrun. Grafarhelgi.

 

1. Málsatvik

Kærandi er sænskur ríkisborgari, kona fædd árið 1913. Árið 1963 dó eiginmaður kæranda og var aska hans grafin í fjölskyldugrafreit í kirkjugarði. Árið 1996 bað kærandi kirkjugarðsyfirvöld um að heimila flutning á duftkeri sem geymdi ösku eiginmannsins yfir í fjölskyldugrafreit í Stokkhólmi, þar sem fyrirhugað var að grafa kæranda síðar. Var beiðni kæranda hafnað á grundvelli ákvæða laga um greftrun þar sem mælt var fyrir um grafarhelgi. Kærur hennar á ákvörðuninni voru án árangurs.

 

2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum

Kæran

Kærandi taldi ákvörðun um að hafna flutningi duftkersins hafa brotið gegn réttindum hans samkvæmt 8. gr. sáttmálans.

 

Niðurstaða

Dómstóllinn leit til þess að flutningur duftkersins virtist einfaldur og að ekki stafaði hætta af honum fyrir lýðheilsu. Á hinn bóginn væri til þess að líta að ekki hefði verið sýnt fram á að eiginmaður kæranda hefði ekki verið grafinn í samræmi við óskir hans sjálfs, enda mætti ætla að almennt væri tekið tillit til óska hins látna við greftrun. Eiginmaður kæranda, eða þau í sameiningu, hefðu getað ákveðið að hann yrði grafinn í fjölskyldugrafreit kæranda í Stokkhólmi. Hann hafi hins vegar verið grafinn í þeim bæ sem hann hafði lifað og starfað í um 25 ár, og þar eignaðist hann fjölskyldu. Þá voru engar takmarkanir á því fyrir kæranda að láta grafa sig í grafreit eiginmannsins. Dómstóllinn taldi því ákvörðun sænskra stjórnvalda innan þess svigrúms til mats sem ríkin hefðu þegar tryggðir væru annars vegar hagsmunir einstaklinga og hins vegar þjóðfélagsins með tilliti til grafarhelgi. Taldi dómstóllinn því að ekki hefði verið brotið gegn 8. gr. sáttmálans.

Þrír dómarar skiluðu séráliti.