©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf  
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201  
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
 

Runkee og White gegn Bretlandi

Dómur frá 10. maí 2007

Mál nr. 42949/98 og 531334/99

8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu

14. gr. Bann við mismunun

1. gr. 1. viðauka Friðhelgi eignarréttar

Mismunun á grundvelli kynferðis. Jákvæðar aðgerðir.

 

1. Málsatvik

 Kærendur eru báðir breskir ríkisborgarar. George Runkee, f. 1938, býr í Hull í Bretlandi og varð ekkill þann 15. mars 1998. Brian White, f. 1942, býr í Warrington í Bretlandi, en eiginkona hans lést þann 8. mars 1999.

 Samkvæmt þágildandi lögum áttu aðeins ekkjur rétt á lífeyrisgreiðslum í kjölfar andláts maka úr svokölluðum ekknasjóði. Lögunum var breytt árið 2001 þannig að greiðslur kæmu til eftirlifandi maka hvort sem hann væri karl eða kona, en tóku aðeins til þeirra sem höfðu misst maka sinn árið 2001 eða síðar. Þar sem kærendur voru karlmenn áttu þeir því ekki rétt á lífeyrisgreiðslum þar sem eiginkonur þeirra létust fyrir árið 2001.

 Samkvæmt sömu lögum voru einnig greiddar sérstakar ekknagreiðslur til kvenna en ekki til karla. Þessar greiðslur voru ætlaðar til þess að standa straum af ýmsum kostnaði vegna andlátsins.

 

2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum

Kæran

 Kærendur töldu að með því að þeir fengju ekki sambærilegar lífeyrisgreiðslur né ekknagreiðslur og konur sem væru í sambærilegri stöðu væri brotið gegn réttindum þeirra samkvæmt 14. gr., sbr. 8. gr. og 1. gr. 1. viðauka.

 

Niðurstaða

 Tilgangur lífeyrisgreiðslna úr ekknasjóði var að rétta hlut eldri ekkna í samfélaginu. Dómstóllinn taldi slíka ráðstöfun vera réttlætanlega og byggða á hlutlægum grundvelli. Með vísan til hægfara þróunar og breytinga á atvinnuháttum kvenna hefði verið örðugt fyrir breska ríkið að slá fastri ákveðinni dagsetningu þar sem eldri ekkjur sem þjóðfélagshópur þyrftu ekki lengur fjárhagslega aðstoð, en sú hafði verið raunin í lengri tíma. Dómstóllinn taldi því ekki ástæðu til þess að gera athugasemd við það að löggjöf þessa efnis var ekki breytt fyrr en árið 2001 í Bretlandi. Þar af leiðandi taldi dómstóllinn ekki að brotið hefði verið gegn 14. gr. sáttmálans, sbr. 1. gr. 1. viðauka með því að greiða ekki karlmönnum sem urðu ekklar fyrir árið 2001 ekknalífeyri.

 Dómstóllinn taldi aftur á móti, eins og dæmt hafði verið áður í sambærilegu máli, að brotið hefði verið gegn 14. gr. sáttmálans, sbr. 1. gr. 1. viðauka með því að gera greinarmun á ekklum og ekkjum varðandi eingreiðslu vegna ýmiss kostnaðar sem félli til við andlát maka, enda væri ekki hægt að sýna fram á með hlutlægum og málefnalegum hætti að gera ætti slíkan greinarmun.

 Dómstóllinn taldi óþarft að kanna hvort brotið hefði verið gegn 14. gr., sbr. 8. gr. sáttmálans.

 Niðurstaða dómstólsins var samhljóða. Kærendum voru dæmdar bætur vegna fjártjóns, Runkee að fjárhæð 2.025 evrur og White 1.870 evrur, en sameiginlega fengu þeir 2.000 evrur í málskostnað og útlagðan kostnað.