© Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Zavrel gegn Tékklandi
Dómur frá 18. janúar 2007
Mál nr. 14044/05
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Börn. Umgengnisréttur.
1. Málsatvik
Kærandi, Vladimír Zavrel, er tékkneskur ríkisborgari, fæddur 1945 og búsettur í Brno í Tékklandi. Í júlí 2001 yfirgaf eiginkona kæranda, JZ, heimili þeirra og tók með sér son þeirra, sex ára gamlan. Þau komust síðar að samkomulagi, sem varðaði meðal annars umgengnisrétt kæranda við barnið. Var þetta samkomulag staðfest af dómstól í Brno hinn 11. desember 2002. Þrátt fyrir samninginn kom JZ í veg fyrir að kærandi gæti umgengist barnið. Kærandi fór fram á að fá umgengnisrétti sínum samkvæmt samningnum framfylgt með aðstoð dómstóla en síðar dró hann þá umsókn til baka, að því er virðist til að forðast frekari illdeilur. Í október 2003 lagði kærandi fram nýja beiðni og fór fram á að dómstólar útfærðu hvernig umgengnisrétti hans skyldi framfylgt. Engar breytingar urðu þó í máli kæranda og hefur hann ekki hitt son sinn frá því í nóvember 2003 nema einu sinni á fundi í tengslum við málið sem var haldinn í ársbyrjun 2004.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að dómstólar hefðu brugðist þeirri skyldu sinni að framfylgja dómsúrlausninni frá 11. desember 2002. Beiðni hans um að fá umgengnisrétti sínum framfylgt hefði hvorki verið sinnt nægjanlega vel né innan hæfilegs tíma. Með því hefði verið brotið gegn rétti hans til friðhelgi fjölskyldu samkvæmt 8. gr. sáttmálans.
Dómstóllinn leit til þess að kærandi var talinn hæft foreldri en JZ hafði hins vegar leitast við að snúa drengnum gegn föður sínum og hafa neikvæð áhrif á samband þeirra. Þá var litið til þess að innlendir dómstólar höfðu metið það svo að það þjónaði hagsmunum barnsins að vera samvistum við föður sinn. Þrátt fyrir að kærandi og sálfræðingar sem unnu að málinu hefðu margsinnis upplýst dómstóla um stöðu mála hefðu dómstólar þó ekkert gert annað en að senda móðurinni tvær formlegar tilkynningar og vísa foreldrunum til ráðgjafarmiðstöðvar. Þá var það álit dómstólsins að umburðarlyndi tékkneskra dómstóla gagnvart tregðu JZ til samvinnu og skortur á úrræðum er stuðla mættu að reglubundnu sambandi barns og föður hefðu umfram annað valdið því að kærandi gat ekki ræktað sambandið við barn sitt, svo sem hann átti þó rétt á samkvæmt gildandi samningi foreldranna.
Það var því einróma niðurstaða dómstólsins að brotið hefði verið gegn rétti kæranda samkvæmt 8. gr. sáttmálans. Þá voru kæranda, með vísan til 41. gr. sáttmálans, dæmdar 6.000 evrur í miskabætur.