©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf  
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201  
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
 

Karakó gegn Ungverjalandi

Dómur frá 28. apríl 2009

Mál nr. 39311/05

8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu

Mörk einkalífs og tjáningarfrelsis. Stjórnmálamenn. Gildisdómar.

 

1. Málsatvik

Kærandi, László Karakó, er ungverskur ríkisborgari, fæddur árið 1955 og búsettur í Gávavencsellö í Ungverjalandi. Hann er þingmaður og tók m.a. þátt í þingkosningum árið 2002.

Í kosningabaráttunni í apríl árið 2002 dreifði stjórnmálamaður í kjördæmi kæranda dreifiriti þar sem því var haldið fram að kærandi ynni oft gegn hagsmunum kjördæmisins. Í maí árið 2002 lagði kærandi fram kæru á hendur stjórnmálamanninum þar sem dreifiritið hefði skaðað orðspor sitt. Rannsókn fór fram en henni var hætt í maí árið 2004 þar sem saksóknari taldi ekki efni til útgáfu ákæru.

Í janúar árið 2005 höfðaði kærandi mál á hendur stjórnmálamanninum en dómstóll hafnaði kröfum hans. Vísað var til þess að í bæklingnum væri að finna gildisdóm sem væri innan marka ásættanlegrar gagnrýni sem væri rýmri þegar um stjórnmálamenn væri að ræða. Þeir yrðu almennt að þola meiri gagnrýni en ætti við um einstaklinga sem stæðu utan stjórnmála.

 

2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum

Kæran

Kærandi hélt því fram að ungversk stjórnvöld hefðu ekki tryggt friðhelgi einkalífs hans fullnægjandi vernd þar sem dómstólar hefðu hafnað kröfum hans í máli hans gegn öðrum stjórnmálamanni. Þannig hefði verið brotið í bága við 8. gr. sáttmálans.

 

Niðurstaða

Dómstóllinn benti á að á þeim tíma sem um ræddi hefði verið til staðar í Ungverjalandi réttarkerfi sem tryggði friðhelgi réttinda sem teldust falla undir einkalíf einstaklinga. Málið lyti að kvörtun vegna ummæla en rétturinn til að viðhafa slík ummæli félli undir tjáningarfrelsið sem nyti verndar 10. gr. sáttmálans. Skylda ríkja til að vernda rétt einstaklinga samkvæmt 8. gr. sáttmálans yrði að samræmast skyldu þeirra til að vernda rétt annarra til tjáningarfrelsis samkvæmt 10. gr. Innlendir dómstólar hefðu komist að þeirri niðurstöðu að fullyrðingarnar um kæranda í dreifiritinu hefðu verið gildisdómar. Réttur stjórnmálamannsins til að tjá sig með þessum hætti væri því verndaður af tjáningarfrelsisákvæði ungverskrar löggjafar. Ungversk stjórnvöld hefðu litið til þess að kærandi væri stjórnmálamaður og að fullyrðingin í dreifiritinu hefði verið sett fram í kosningabaráttu sem hann hefði tekið þátt í og fól í sér neikvæða umfjöllun um opinber störf hans. Því var það mat innlendra dómstóla að ummælin um kæranda nytu verndar tjáningarfrelsisákvæðis ungversku stjórnarskrárinnar.

Dómstóllinn tók undir niðurstöðu innlendra dómstóla og tók fram að hefðu innlendir dómstólar sektað stjórnmálamanninn fyrir ummælin hefðu þeir takmarkað tjáningarfrelsi hans með ólögmætum hætti og þar með brotið í bága við 10. gr. sáttmálans. Það var því einróma niðurstaða dómstólsins að ekki hefði verið brotið í bága við 8. gr. sáttmálans þar sem ummæli stjórnmálamannsins um kæranda væru innan marka þess sem tjáningarfrelsisákvæði landslaga og sáttmálans heimiluðu honum.